arnthor´s life

fimmtudagur, maí 25, 2006

ok ok verið bara róleg

Málið er bara að mér hefur ekki fundist ég hafa neitt að segja. Ok ég byrja bara að uppfæra lífið: Við erum komnir með nýjan gítarleikara, Danny að nafni, og hann er líka bakraddasöngvari og lagahöfundur, þannig að hann er töluverður fengur, vona ég.
Okkur vantar ennþá solo gítarleikara.
Tölvan mín hrundi um daginn og ég slapp rétt fyrir horn með að tapa ekki öllu sem í henni var, en sem betur fer er ég með ferðatölvu og býst við að ég noti hana bara framvegis.
Við erum byrjuð að þreifa fyrir okkur með að kaupa hús hérna og þá helst þetta sem við erum í.
Við erum búin að vera þokkalega dugleg, að okkar mati, við að uppfæra síðuna hans Alexanders og er þar hægt að finna þó nokkur video og u.þ.b. 800 myndir.
Ég keypti mér disk í fyrsta skipti í langan tíma og það var náttúrulega Stadium Arcadium með Red Hot Chili Peppers, en ég hef keypt alla diskana þeirra en tveim var stolið frá mér. Það er skemmst frá því að segja að þetta er bara hrein og tær ánægja í tónlistarformi.
Ég fór á tónleika með Carlos Santana um daginn með Hölla og það var ótrúleg upplifun sem ég mun lengi lifa á, allavega þar til ég fer á tónleika með RHCP, hvenær sem það nú verður.

og að öðru ....
Hvað finnst ykkur um að taka sér frí frá námi eftir grunnskóla? Persónulega er ég alveg á móti því og skil ekki afhverju það er ekki skólaskylda fyrir framhaldsskóla eða alveg til 20 ára. Flestir krakkar hafa hvorki þroska né vit til að ákveða hvað er rétt fyrir þau og sumir foreldrar ekki heldur. Það er eins og fólki sé sama þó að börn þeirra taki áhættu með hvaða stefnu líf þeirra tekur og að þau byrji lífið áður en þau eru tilbúin til þess. Persónulega ætla ég að gera allt til að mín börn taki sér ekki frí fyrr en í fyrsta lagi að þau eru búin með menntaskóla eða annan álíka framhaldsnám. Margir sem segja að það þýði ekkert að reka fólk í skóla því þá læri það ekkert og eyði bara tímanum í vitleysu, en ég vill frekar að þau eyði tímanum í skóla en að festast í einhverju láglaunastarfi, sem er mikil hætta á ef maður á annað borð byrjar, því það er ekkert auðvelt að byjra aftur í skóla eftir nokkurra ára hlé. Frekar að klára stúdentinn og eiga þá möguleika á því námi sem maður vill eða þá bara hætta þá. Ég gæti eytt allmörgum línum í að útlista kosti þess að halda áfram í námi.
Jæja ég verð að fara að hengja út þvott.

Seinna

7 Comments:

  • VARSTU Á TÓNLEIKUM MEÐ HVERJUM??? SANTANA??? Ertu hálviti??? Af hverju læturðu mig ekki vita af svona viðburðum??? Helvítis fíflið þitt!"!$=;# Er sjálf að fara á tónleika með Jeff Healy þann 9. júní. Jamm, jamm. Ég hélt að það væri 1. apríl gabb með að Hölli eða Hlölli væri að hætta hjá ykkur. Kannski hringi ég bara í þig núna? Ha'

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:41 e.h.  

  • P.S. ég kannski fæ þennan R.H.C.P. disk lánaðan hjá þér. Ég held að hann sé algjör snilld.

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:43 e.h.  

  • Heyrðu p.s.s. R.H.C.P héldu tónleika í DK um daginn en það voru surprice tónleikar með bara 1500 manns eða eitthvað... þegar gellan sagði mér þetta þá næstum því hengdi ég hana........... ég aftur

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:45 e.h.  

  • Ég fór beint í framhald og grýtti peningunum út loftið. Hafði engan áhuga og engan metnað. Hefði betur farið á vinnumarkaðinn. Ég hafði nefninlega ekki hugmynd hvað mig langaði að læra. Núna er ég í skóla, búin að vera í fjarnámi í 2 ár. Er með topp einkunnir og er að læra eitthvað sem skiptir mig máli. Það er gaman að skila verkefnum og búa til ritgerðir ÓTRÚLEGT en SATT. Þetta er bara svo misjafnt, auðvitað á ég eftir að hvetja strákana mína til að halda áfram í námi en hver veit kanski eru þeir eins og mamma sín.

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:14 f.h.  

  • ég hef bara heyrt Dani California og það er sjúklega flott...

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:21 f.h.  

  • Þetta er trikkí með skóla eftir grunnskóla. Nokkuð til í þessu sem j.þ. sagði, en á móti kemur að þegar maður byrjar skyndilega að fá marga tíuþúsundkalla á mánuði sem maður má gera við hvað sem mann langar til, þá er mjög auðvelt að ánetjast því. Og flest láglaunastörf valda því einnig að heilinn festist í ákveðnu mynstri og nánast allt fólk "fílar" það mynstur sem það festist í. Jafnvel þótt það sé neikvætt mynstur. Ég held ég þekki persónulega engan sem vill breyta sínu mynstri, því að það er svo helvíti óþægilegt.

    Hölli.

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:31 f.h.  

  • By Blogger Unknown, at 7:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home