arnthor´s life

sunnudagur, júlí 09, 2006

Viva la revolution

Ég var að horfa á mynd sem ber hið gamaldags nafn "V for vendetta" og ég verð að segja að það er mjög sjaldgæft núorðið að kvikmynd hafi mikil áhrif á mig, en þessi mynd, sagan og boðskapurinn fær fólk sem er á annað borð nennir að hugsa sjálfstætt til að íhuga lífið og tilveruna sem við erum búin að skapa okkur.
Í myndinni er "and"-hetjan okkar að berjast á móti alræðisstjórn sem er að gera sitt besta til að drepa sjálfstæða hugsun, því að eins og við vitum er sjálfstæð hugsun hættuleg. Auðvitað er bylting eina leiðin til að berjast á móti alræði og á hverjun degi verð ég meira og meira sannfærður að það er það sem þarf í dag, kannski eru þetta einhverjar leifar af unglinga uppreisninni en það er í lagi ef það er það sem þarf til að segja það sem þarf að segja.
Ég er orðinn svo þreyttur á að allt þarf að vera matreitt ofan í okkur af menningarlegum-, pólitískum- og félagslegum næringarfræðingum. Þá á ég við að það er búið að nánast allt sem maður sér og heyrir er eitthvað einhver búinn að skera alla fitu af og svo einhver enn annar búinn að samþykkja. Og eins og við vitum felast gæðin í fitunni.
Sonur minn var að horfa á MTV núna áðan og mér var litið á skjáinn og sá á 10 mínútum flest sem ég hef nefnt hér að ofan á einn eða annan hátt.
Ég var inná heimasíðu núna fyrir ekki svo löngu og las þar reiðipistil einhverrar ungrar kona sem var að fárast yfir því að einhver unglings piltur skyldi nota frasa frá nastistum á árbókina sína. Núna er ég ekki tala um einhvern haturs boðskap heldur eitthvað sem var satt hvort sem Hitler eða móðir Teresa hefðu sagt það. Frasinn var eitthvað á þá leið "Til að ljúga að stórum hópi fólks þarf stóra lygi".
Hérna er stuttur listi yfir nokkrar stórar lygar:

Skipulögð trúarbrögð - sérstaklega kristin trú og Íslam dagsins í dag.

Stríð - Og þá sérstaklega afrakstur Bush-feðga sem við skulum kalla olíustríðin.

Pólitík - er afrakstur gamalla hefða, trúar og valdagræðgi. Góður maður verður aldrei í pólitík lengi.

3 Comments:

  • Viljum við ekki öll láta ljúga svolítið að okkur. Það er allavega alveg svakalega þægilegt að láta malla ofan í sig svo maður þurfi helst ekkert að pæla of mikið. En fólk þarf aðeins að hugsa sig tvisvar um þegar kemur að einhverju eins og stríði, trúarbrögðum og pólitík, það eru örugglega ekki margir sem virkilega hugsa um og vita hvað þeir vilja fá út úr þessum hugtökum. So lets dig in.

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:11 f.h.  

  • Ég er svo innilega sammála þér með myndina "V for vendetta" ég sá hana fyrir stuttu og öðru hverju hugsa ég um hana og þá sérstaklega þegar ég horfi á fréttir eða les þær. Er þetta allt satt og rétt sem ég les og horfi á eða er þetta tilbúningur til að mynda ákveðna skoðun á málum sem við hefðum allt aðra skoðun á ef við værum ekki hreinlega mötuð af þessum "STAÐREYNDUM" sem matreiddar eru ofaní okkur. Tökum til dæmis eitt mál fyrir: Forseti bandaríkjana Bush. Maðurinn fékk peninga í kosningabaráttu sína frá til dæmis vopnaframleiðundum og um leið og hann náði kjöri, hvað gerðist? Það varð stríð. Manni dettur í hug hvort 11.sept hafi verið tilbúningur.... En þetta og margt fleira dettur manni í hug við að horfa á myndina "V for vendetta" og ef ein mynd fær mann aðeins til að virkja sellurnar þá mæli ég með bæði myndinni og að við virkjum heilagrautinn aðeins. Ok ég tapaði mér aðeins á lyklaborðinu núna. En þar til nærst kær kveðja frá Hornafirði.

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:35 e.h.  

  • By Blogger Unknown, at 2:47 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home