arnthor´s life

þriðjudagur, apríl 18, 2006

Ég á nú bara afmæli í dag

Eftir nokkrar klukkustundir, nánar tiltekið klukkan 12 á hádegi að íslenskum tíma, verður fæðingu minni minnst víða um heim. Ástæðan fyrir því hvað lítið hefur verið um skrif hjá mér er að ég er svo gjörsamlega andlaus að það hálfa væri nóg. En núna hef ég tekið ákvörðum um að það fari að breytast, núna fer ég að setjast hérna niður reglulega með öl eða rauðvín og prufa að hripa eitthvað niður. Ég er mikið búinn að vera að velta því fyrir mér undanfarið, hvar ég vilji vera jarðaður og það er allt annað en auðveld ákvörðun. Eins og er stendur valið á milli að það yrði bara gert þar sem ég enda eða að ég yrði jarðsettur á Fáskrúðsfirði, sem er eini staðurinn hingað til sem mér hefur fundist ég eiga heima en kannski er það bara eitthvað nostalgiu-væl.
seinna

3 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home