arnthor´s life

þriðjudagur, apríl 19, 2005

Tímamót

jæja, núna er dagurinn kominn, í dag verð ég 30 ára. Ef mér og Ívari hefði verið sagt fyrir 14 árum að við myndum báðir ná uppí þennan háa aldur hefðum við báðir orðið fyrir herfilegum vonbrigðum með sjálfa okkur, en í dag er ég bara spenntur. Það er í rauninni ekki fyrr en núna sem mér finnst ég vera tilbúinn til að fara að gera eitthvað, og þá vonandi í tónlist. Ég sit hérna í mestu makindum fyrir framan tölvuna að hlusta á bestu hljómsveit í hinum þekkta heimi, Blúsband Hölla Val´s, þar sem saman voru komnir einhverjir allra færustu tónlistarmenn sem ég hef haft heiður af að starfa með, náttúrulega Hölli vals minn vinur til margra ára og spilafélagi, Sverrir "góurinn" Þorleifs melódískasti og kaldhæðnasti trommari hérna megin við Kilimanjaro og síðast en allsekki síst Örn Gítarhetja hrein unun að hlusta á og að spila með þér. Fólki finnst þetta kannski dálítið væmið en bara þeir sem hafa tekið þátt í einhverju jafnmögnuðu og þessari hljómsveit, skilja þær tilfinningar sem þar koma við sögu, og ég er orðinn svo gamall og þroskaður að ég get talað um þær án þess að fara í hnút, en samt bara fullur eða á netinu.
Verð að segja að mér líður nú ekkert öðruvísi, en það á kannski eftir að breytast. Solla er að baka inní eldhúsi, sem er fínt en ég held að hún sé spenntari yfir þessu en ég, hún er kannski með krossaða fingur að vona að ég fari að þroskast eitthvað að ráði. jæja ég skrifa kannski meira í dag ef ég hef þroskast eitthvað. Bið svo bara að heilsa öllum sem ég þekki. Takk fyir allt.

5 Comments:

  • Til hamingju með 30 árin gaman að sjá hvað þið hafið það gott kveðja til ykkar allra Andrea frænka

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:11 f.h.  

  • Sæll frændi og til hamingju með daginn! Kíki stundum á bloggið þitt. Hafðu það sem allra best í dag
    Kveðja
    Jónína Rakel Frænka

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:22 f.h.  

  • Innilegar hamingjuóskir með daginn, ótrúlegt en satt 30 ára drengurinn. Kveðja Olla og Ölli

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:11 f.h.  

  • Innilegar hamingjuóskir með 30 Árin
    Njótið dagsinns og veðurblíðunnar í DK því nú er loks að koma sumar.

    ES.
    Já en það er með 30 ára takmarkið, þá rennur víst ábyrgðin út og því verður ekki hægt að skila þér eftir þetta.
    Þvílíkur léttir Mömmu !!!!!!

    Aldur er eins og koníak þú verður bara betri með árunum sem líða.

    Besta kveðja
    Jóa frænka og Óli Þór

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:04 f.h.  

  • Það eru allir svo ruglaðir hér... syngja ekki afmælissöngin:
    Hann á afmæli í dag,
    hann á afmæli í dag,
    hann á afmæl'ann ADDI...
    hann er 30 í dag =)
    Til hamingju með elliárin og bestu kveðjur frá klakanum...
    p.s. við erum að fara á skíðamót um helgina (andrésar andar) =)=)=)=)=)

    Kv: Aníta og Snæþór

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home